Grímseyjarferjan Sæfari í slipp, engar ferðir í næstu viku

Grímseyjarferjan Sæfari í slipp, engar ferðir í næstu viku

Farþegaflutningar til Grímseyjar munu einunigs fara flugleiðina í næstu viku vegna slipptöku Grímseyjarferjunnar Sæfara. Í tilkynningu frá Akureyrarbæ segir:

„Grímseyjarferjan Sæfari mun fara í slipp næstkomandi mánudag 13. nóvember og falla allar ferðir niður þá vikuna.
Fram að slipptöku siglir Sæfari til Grímseyjar samkvæmt áætlun þ.e. á morgun, miðvikudag 8. nóvember og föstudaginn 10. nóvember.

Meðan Sæfari er í slipp mun fiskiskipið Þorleifur sinna afurða- og vöruflutningum til og frá eynni. Áætlunarflug milli Akureyrar og Grímseyjar verður í boði eins og verið hefur á vegum Norlandair þriðjudaga, föstudaga og sunnudaga og verður flugferðum fjölgað ef þörf reynist, sjá nánar á norlandair.is

UMMÆLI

Sambíó