Kærkomin viðbót við útivistarparadísina Akureyri

Kærkomin viðbót við útivistarparadísina Akureyri

Anita Hafdís Björnsdóttir er ein af fimm eigendum Zipline Akureyri sem stefnt er á að opna í Glerárgili í júní. Anita segist eiga von á því að Zipline Akureyri verði kærkomin viðbót við útivistarparadísina Akureyri.

Sjá einnig: Zipline Akureyri opnar í júní

Þetta er 5 línu ferð og svífur fólk yfir Glerána í Glerárgili á gullfallegu svæði og jafnvel inn á milli trjáa, enda þétt skóglendi í gilinu. Á stuttum göngutúrum milli línanna, meðfram ánni og inn í skóginn, segja leiðsögumenn skemmtilegar sögur og staðreyndir um svæðið,“ segir Anita við Kaffið.is.

Áætluð opnunarhátíð er fyrstu helgina í júní, Hvítasunnuhelgina. Fljótlega verður opnað fyrir bókanir á vefsíðunni www.ziplineakureyri.is.

„Við sjáum mikla eftirvæntingu fyrir ziplínunni, á Norðurlandi og landinu öllu, fáum mikið af fyrirspurnum nú þegar og fólk bíður óþreyjufullt eftir því að komast á línurnar. Það er einstaklega ánægjulegt að finna þessar frábæru viðtökur strax og gefur okkur auka kraft í að reyna að opna sem allra allra fyrst,“ segir Anita.

Zipline Akureyri er sett upp í samstarfi við og að fyrirmynd Zipline Iceland í Vík í Mýrdal. „Aðgengi er til fyrirmyndar þar sem Zipline Akureyri er staðsett í Glerárgili við Hlíðarbraut í miðjum bænum. Fólk getur komið til okkar gangandi, hjólandi, Hoppandi eða frítt með strætó, svo er auðvitað nóg af bílastæðum líka,“ segir Anita.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó