Krakkar kynnast sjávarútvegi í Sjávarútvegsskóla Háskólans á Akureyri

Krakkar kynnast sjávarútvegi í Sjávarútvegsskóla Háskólans á Akureyri

Sjávarútvegsskóli Háskólans á Akureyri er um þessar mundir á ferð um Norður- og Austurland.

Krakkar á aldrinum 13–14 ára í vinnuskólanum á Norður- og Austurlandi hafa nú í sjöunda sinn tækifæri til að kynnast sjávarútveginum í Sjávarútvegsskóla Háskólans á Akureyri. Skólinn var settur á stofn af Síldarvinnslunni hf. á Neskaupsstað en Sjávarútvegsmiðstöð Háskólans á Akureyri tók svo við rekstri hans árið 2016. Í ár er skólinn starfræktur á fimm stöðum á Austurlandi og fjórum stöðum á Norðurlandi. Nemendur eru starfsmenn í vinnuskólanum og samtals sækja 200 krakkar skólann.

Kennslan fer fram í viku í senn á hverjum stað í samvinnu við vinnuskóla sveitarfélaganna. Umsjónarmenn eru núverandi eða fyrrverandi nemendur í sjávarútvegsfræði og líftækni við Háskólann á Akureyri. Nemendur fá fræðslu um mikilvægi sjávarútvegs og hvaða atvinnumöguleika og tækifæri hann hefur upp á að bjóða. Auk fræðslunnar fá nemendur að fara í heimsóknir til sjávarútvegsfyrirtækja og stoðfyrirtækja í sjávarútvegi, gestafyrirlesarar koma með erindi og björgunarsveitir heimsóttar.

„Mikilvægi Sjávarútvegsskólans í þessum minni sveitarfélögum á landsbyggðinni er ómetanlegt. Margir þessara unglinga þekkja vafalaust til sjávarútvegsins – hann er allt um lykjandi – en með fræðilegri- og lifandi nálgun er hægt að varpa ljósi á framþróunina og nýja möguleika sem einmitt þessir unglingar gætu haft á framtíð sjávarútvegsins um allt land. Í breyttu starfsumhverfi sjávarútvegsins hafa unglingar í dag færri tækifæri til að starfa beint hjá fyrirtækjunum og því er Sjávarútvegsskólinn nauðsynleg tenging við unga fólkið”, segir Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri.

Umsjónarmenn á Austurlandi eru María Marta Bjarkadóttir, núverandi nemandi í sjávarútvegsfræði, og Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, nýbrautskráð úr sjávarútvegsfræði. Á Norðurlandi standa vaktina María Dís Ólafsdóttir, sem er brautskráð úr líftækni, og Magnúsi Víðissyni, brautskráður úr sjávarútvegsfræði. Gaman er að fylgjast með starfinu í máli og myndum á Facebook-síðu Sjávarútvegsskólans. Auðséð er að starfið er fjölbreytt og skemmtilegt.

Sambíó

UMMÆLI