Kvennakórinn Embla flytur perlur frá barrokktímanum ásamthljómsveit og einsöngvurum.Kvennakórinn Embla á æfingu í Glerárkirkju.

Kvennakórinn Embla flytur perlur frá barrokktímanum ásamthljómsveit og einsöngvurum.

Laugardagskvöldið 10. júní næstkomandi mun Kvennakórinn Embla ásamt hljómsveit og einsöngvurum flytja Stabat mater eftir Pergolesi og Gloria eftir Vivaldi á tónleikum í Glerárkirkju.

Einsöngvarar eru Helena Guðlaug Bjarnadóttir, Erla Dóra Vogler og
Sigrún Hermannsdóttir og stjórnandi er Roar Kvam.

Í tilkynningu frá kórnum kemur fram að miðaverð sé 5000 krónur og posi verði á staðnum.
Einnig verður geisladiskur Kvennakórsins, Íslenskar söngperlur, til
sölu við innganginn og kostar kr 3500 krónur. Diskurinn kom út í lok árs
2022 og er ófáanlegur í verslunum.

„Pergolesi samdi Stabat mater við latneskt miðaldarljóð og fjallar
verkið um sorg Maríu meyjar við krossfestingu sonar síns. Verkið
var síðasta tónverk hans og er af mörgum talið hans besta verk.“

„Gloria eftir Vivaldi er eitt vinsælasta kórverk allra tíma og var
upprunalega samið fyrir blandaðan kór en verður hér flutt í
útsetningu fyrir kvennakór og strengjasveit og orgel. Verkið er byggt
á bæninni Gloria in excelsis Deo frá fjórðu öld.“

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó