Lest í GrímseyMynd: Anne-Lise Stangenes - Akureyri.is

Lest í Grímsey

Hjónin Svafar Gylfason og Unnur Ingólfsdóttir hafa keypt lest til að keyra fólk um Grímsey. Ferðamönnum fer fjölgandi í eyjunni og von er á 29 skemmtiferðaskipum til eyjunnar í ár.

Engar almenningssamgöngur eru í Grímsey og því ákvaðu Svafar og Unnur að kaupa lest til að auðvelda fólki að ferðast um eyjuna.

Í umfjöllun á vef Akureyrarbæjar segir að boðið sé upp á akstur með nokkrum stoppum suður að vitanum og síðan að gamla kennileitinu um heimskautsbauginn. Lestin rúmar að hámarki 50 manns og tekur ferðin um eina og hálfa lukkustund með stoppum.

Lestin hefur nú þegar komið að góðum notum og var meðal annars ekið með farþega skemmtiferðaskipsins National Geographic Explorer í kvöldsólinni í gærkvöldi.

Til að bóka ferð með nyrstu og mögulega einu lest Íslands eða fá nánari upplýsingar sjá hér


UMMÆLI

Sambíó