Lögreglan á Norðurlandi eystra leitar að konu með sítt hár í kimono

Lögreglan á Norðurlandi eystra leitar að konu með sítt hár í kimono

Lögreglan á Norðurlandi eystra auglýsir eftir vitni af atviki sem átti sér stað á skemmtistaðnum Vamos á Akureyri aðfaranótt 29. maí fyrr á þessu ári. Atvikið átti sér stað rétt fyrir klukkan 3 um nóttina.

Vitnið sem leitað er að er kona með sítt hár og var hún klædd í kimono með blómamynstri. Hún var í samskiptum við konu og karlmann á efri hæðinni þegar atvikið sem til rannsóknar er átti sér stað.

Viðkomandi aðili sem kannast við sig í þessari lýsingu er vinsamlegast beðinn að hafa samband við Maríu Jespersen rannsóknarlögreglumann hjá lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra í síma 444-2800.

UMMÆLI