Norðurstrandarleiðin formlega opnuð

Norðurstrandarleiðin formlega opnuð

Norðurstrandarleiðin, eða Arctic Coast Way, var formlega opnuð um helgina á Hvammstanga og Bakkafirði. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

Þar segir að ánægjulegt sé að þessum áfanga hafi verið náð þar sem leiðin hafi verið í þróun í meira en þrjú ár.

Sjá einnig: Norðurstrandarleiðin í þriðja sæti hjá Lonely Planet yfir bestu áfangastaði Evrópu

Á vef Akureyrarbæjar segir:

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra og Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, klipptu á borða við afleggjarann inn á Hvammstanga og opnuðu þannig leiðina formlega. Það sama gerðu Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis og Árni Bragi Njálsson, fulltrúi sveitarstjórnar Langanesbyggðar við afleggjarann inn á Bakkafjörð.

Við opnunina voru ný skilti vígð, sem marka Norðurstrandarleið og segja ferðamönnum hvenær þeir ferðast eftir henni. Þessi skilti marka þáttaskil í íslenskri ferðaþjónustu, því í fyrsta sinn eru komin upp skilti með brúnum lit. Sá litur er þekktur erlendis fyrir skilti sem tengjast ferðaþjónustu.

Á Akureyri var deginum fagnað í dag sem og á fleiri stöðum á leiðinni. Boðið var upp á sögusiglingu með Húna II, Norðurstrandar Jazz, siglingarklúbburinn Nökkvi og Ventur North kynntu starfsemi sína og gáfu gestum kost á að bregða sér í siglingu, Iðnaðarsafnið var með leiðsögn um sýninguna „Sjómaðurinn og hafið: Akureyrsk útgerð á 20. öld“.  Í Hrísey var fjöruhreinsun og grill og tóku heimafólk og erlendir ferðamenn til hendinni og í Grímsey verður m.a. boðið upp á gönguferð norður á bauginn í kvöld.

Heimasíða Norðurstrandarleiðarinnar.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó