Óli Stefán hættur hjá KA

Óli Stefán hættur hjá KA

Knattspyrnudeild KA og Óli Stefán Flóventsson hafa komist að samkomulagi um starfslok Óla hjá félaginu. Þetta kemur fram á vef félagsins í dag.

Þar segir að gengi KA það sem af er tímabili sé ekki ásættanlegt. Báðir aðilar telji það nauðsynlegt að gera þessar breytingar til þess að liðið nái sér á strik á nýjan leik og sýni sinn rétta styrk.

KA hafa enn ekki unnið leik í Pepsi Max deild karla í sumar en síðasta sumar náði liði fimmta sæti undir stjórn Óla Stefáns sem er besti árangur félagsins síðan félagið kom aftur upp í deild hinna bestu á Íslandi.

„Stjórn Knattspyrnudeildar KA þakkar Óla Stefáni fyrir framlag sitt til félagsins og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni. Félagið mun nú þegar skoða sín mál varðandi þjálfun liðsins og mun ekki tjá sig nánar um málið að svo stöddu,“ segir í tilkynningu á vef KA.

Mynd með frétt: KA.is/Sævar Geir Sigurjónsson

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó