Ólöf Björk sæmd Gullmerki ÍSÍ

Ólöf Björk sæmd Gullmerki ÍSÍ

Ólöf Björk Sigurðardóttir var sæmd Gullmerki Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) þegar ársþing Íshokkísambands Íslands (ÍHÍ) fór fram í Pakkhúsinu á Akureyri á laugardaginn, 13. maí.

Viðar Garðarsson, úr framkvæmdastjórn ÍSÍ, var þingforseti og fulltrúi ÍSÍ á þinginu. Hann sæmdi Ólöfu Gullmerki ÍSÍ fyrir hennar ómetanlegu störf fyrir íþróttahreyfinguna. Ólöf hefur verið formaður íshokkídeildar Skautafélags Akureyrar óslitið frá 2004 þegar hún var fyrst kjörin formaður íshokkídeildar SA.  Hún er nú að hefjast sitt tuttugasta íshokkítímabil.

Kosið var í nýja stjórn á þinginu og var Helgi Páll Þórisson endurkjörinn formaður til næstu tveggja ára.  Auk Helga Páls voru kjörin í stjórn Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Bergur Jónsson, Hilmar Freyr Leifsson og Olgeir Olgeirsson.  Í varastjórn voru kjörin Ingólfur Tryggvi Elíasson, Sigrún Agatha Árnadóttir og Arnar Sveinsson.

UMMÆLI