Reiður og sár yfir því að landsbyggðin þurfi að gjalda fyrir fjölda smita á höfuðborgarsvæðinu

Reiður og sár yfir því að landsbyggðin þurfi að gjalda fyrir fjölda smita á höfuðborgarsvæðinu

Tryggvi Kristjáns­son, fram­kvæmda­stjóri Bjargs, lík­ams­rækt­ar­stöðvar á Ak­ur­eyri, hefur lýst yfir vonbrigðum með ákvörðun stjórnvalda að loka líkamsræktarstöðvum á landsbyggðinni vegna Covid-19 faraldursins.

Tryggvi skrifaði í gær pistil á Facebook-síðu sinni sem hefur vakið gífurlega athygli. Hann kallar eftir því að reglur um lokanir verði í samræmi við alvarleika faraldursins í hverjum landshluta.

„Mér finnst það hreinlega ósanngjarnt að Akureyringar og aðrir í áðurtöldum landshlutum eigi að gjalda fyrir þann slóðaskap sem hópur fólks fyrir sunnan hefur sýnt með því að hlýða ekki fyrirmælum. Það að loka líkamsræktarstöðvum er mikil skerðing á daglegri rútínu margra og má jafnvel segja grunnþjónustu. Það er einmitt á svona erfiðum tímum sem hlutverk líkamsræktarstöðva verður enn stærra og mikilvægara,“ skrifar Tryggvi meðal annars en pistil hans má lesa í heild hér að neðan.

Hertari samfélagslegar aðgerðir til að sporna við útbreiðslu Covid-19 taka gildi mánudaginn 5. október. Stærstu einstöku breytingarnar verða 20 manna fjöldatakmörkun með ákveðnum undantekningum en þar má nefna 50 manna hámark í útförum og 100 manna hámark í tilteknum verslunum. Krám, skemmtistöðum, spilasölum og líkamsræktarstöðvum verður lokað.

https://www.facebook.com/tryggvi.kristjansson/posts/10157730612401274
Sambíó

UMMÆLI