Skíðakona flutt á Sjúkrahúsið á Akureyri eftir snjófljóð

Skíðakona flutt á Sjúkrahúsið á Akureyri eftir snjófljóð

Björgunarsveitir á Norðurlandi og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út á fjórða tímanum í gær eftir tilkynningu um að snjóflóð við Þveráröxl í Fnjóskadal. Ein skíðakona varð fyrir flóðinu og slasaðist talsvert án þess að vera talin í lífshættu.

„Mikil snjóflóðahætta var á vettvangi, ásamt því að veðurskilyrði voru erfið, og var því ákveðið að þyrlan færi ekki beint á vettvang meðan unnið væri að því að tryggja öryggi björgunaraðila. Ekki var unnt að komast á vettvang á sleðum eða öðrum tækjum og þurftu björgunaraðilar að fara fótgangandi og klofa djúpan snjó á leið sinni á vettvang,“ segir í tilkynningu lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

Konan sem slasaðist reyndist vera með talsverða áverka og m.a. fótbrotin. Viðbragðsaðilar hlúðu að henni á vettvangi og bjuggu um hana til flutnings í s.k. skel. Konan var borin í skelinni niður fjallið og var komin í sjúkrabíl kl. 18:24. Hún var þá orðin nokkuð köld og var flutt til aðhlynningar á Sjúkrahúsið á Akureyri. Frekari upplýsingar um áverka hennar liggja ekki fyrir þegar þetta er skráð.

Alls komu um 130 viðbragðsaðilar að aðgerðinni og má geta þess að skráðir voru í aðgerðina 20 bílar, 24 vélsleðar, 1 þyrla, 3 leitarhundar, 1 snjóbíll, 1 dróni og 2 sjúkrabílar.

Sambíó

UMMÆLI