Slökkviliðið kallað út að Sjúkra­hús­inu á Ak­ur­eyri vegna gufu

Slökkviliðið kallað út að Sjúkra­hús­inu á Ak­ur­eyri vegna gufu

Slökkviliðið á Ak­ur­eyri var kallað út að Sjúkra­hús­inu á Ak­ur­eyri í gærkvöldi þegar gufa vegna þrifa í eldhúsi setti eldvarnarkerfið í gang. Það var því sem betur fer ekki um alvarlegt atvik að ræða. Þetta kemur fram á vef mbl.is.

Þar er haft eftir vaktstjóra hjá Slökkviliðinu á Akureyri að sumir eldvarnaskynjarar séu næmir og geti talið gufu vera reyk vegna ljósskynjarabúnaðar sem er á þeim.

Sambíó

UMMÆLI