Sunna Hlín gefur kost á sér í oddvitasæti Framsóknar á Akureyri

Sunna Hlín gefur kost á sér í oddvitasæti Framsóknar á Akureyri

Sunna Hlín Jóhannesdóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér í oddvitasætið á lista Framsóknarflokksins á Akureyri fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Á fjölmennum fundi Framsóknarfélaganna á Akureyri fyrr í dag var samþykkt að halda opið prófkjör til sveitarstjórnarkosninga þann 12. mars næstkomandi.

Sjá einnig: Opið prófkjör Framsóknar á Akureyri

„Sem fulltrúi í ráðum sveitarfélagsins hefur áhugi minn á bæjarmálunum aðeins aukist, ég tel mig þekkja verkefnin og klæjar í puttana að hefjast handa við að setja saman og kynna metnaðarfulla stefnuskrá í nánu samstarfi við Framsóknarfólk á Akureyri. Það eru spennandi tímar framundan á Akureyri og bærinn í mikilli framsókn,“ segir Sunna Hlín. 

Sunna er með mastersgráðu í samskipta, auglýsinga- og markaðsfræðum og hefur starfað við ýmislegt í gegnum tíðina:  Almenn sveitastörf, blaðamennsku, almannatengsl og stundakennslu við Háskólann á Akureyri. Síðustu 14 ár hefur hún kennt á viðskipta- og hagfræðibraut Verkmenntaskólans á Akureyri. Á árunum 2010 til 2014 sat hún einnig í sveitarstjórn Hörgársveitar. Hún var í fimmta sæti á lista Framsóknarflokksins á Akureyri í kosningum árið 2018.

Sambíó

UMMÆLI