Sunneva Ósk ráðin framleiðslustjóri ÚA

Sunneva Ósk ráðin framleiðslustjóri ÚA

Sunneva Ósk Guðmundsdóttir hefur verið ráðin í stöðu framleiðslustjóra landvinnslu Útgerðarfélags Akureyringa en hún hefur undanfarin ár verið gæðastjóri félagsins. Þetta kemur fram á vef Samherja.

 Unnur Inga Kristinsdóttir sölufulltrúi hjá Ice Fresh Seafood tekur við af Sunnevu sem gæðastjóri landvinnslu. Þá hefur Gyða Birnisdóttir verið ráðin sem sölufulltrúi hjá Ice Fresh Seafood.

Sunneva Ósk Guðmundsdóttir hefur verið gæðastjóri landvinnslu Samherja í tvö og hálft ár og starfað við gæðamál hjá ÚA og Samherja í nærri fimm ár. Hún er sjávarútvegsfræðingur frá Háskólanum á Akureyri og með MS gráðu í forystu og stjórnun með áherslu á mannauðsstjórnun frá Háskólanum á Bifröst.

Unnur Inga Kristinsdóttir hefur undanfarin fimm ár starfað sem sölufulltrúi hjá Ice Fresh Seafood, sem sér um sölu afurða Samherja, dótturfélaga þess og annarra framleiðenda. Unnur Inga er sjávarútvegsfræðingur frá Háskólanum á Akureyri og með MBI gráðu í alþjóðlegum viðskiptum frá Háskólanum á Bifröst.

Gyða Birnisdóttir hefur starfað lengi við sjávarútveg og þekkir greinina svo að segja frá öllum hliðum. Hún kemur að sölu afurða Samherja, dótturfélaga og annarra framleiðenda. Hlutverk hennar er meðal annars að vera tengiliður við viðskiptavini víðs vegar um heiminn og tryggja að afurðir berist þeim á tilsettum tíma. Gyða er sjávarútvegsfræðingur frá Háskólanum á Akureyri.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó