Þór/KA semur við bandarískan markvörð

Þór/KA semur við bandarískan markvörð

Bandaríska knattspyrnukonan Melissa Anne Lowder hefur skrifað undir samning við Þór/KA um að leika með liðinu út komandi tímabil. Melissa spilar sem markvörður. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Þór/KA.

Melissa er fædd árið 1997. Hún spilaði fótbolta með Santa Clara Broncos á háskólaárunum og á að baki 63 leiki þar á árunum 2015-2018. Hún hefur frá þeim tíma verið á mála hjá Utah Royals, Chicago Red Stars og San Diego Waves í Bandaríkjunum. 

Melissa kveðst hlakka til að ganga til liðs við Þór/KA. „Ég er ótrúlega spennt fyrir tækifærinu til að spila fyrir Þór/KA og að þroska þekkingu mína á leiknum. Ég hlakka mjög til að upplifa tengslin við stuðningsfólkið og það sem þessi klúbbur stendur fyrir. Ég vonast til að koma með góða orku og árangur inn í félagið!“ segir Melissa Anne Lowder, í viðtali við heimasíðu Þór/KA.


UMMÆLI