Tíu vinsælustu fréttir ársins

Eigendur Grænegg, með hamingjusama hænu á höfði.

Eigendur Grænegg, með hamingjusama hænu á höfði.

Nú fer árið 2016 að líða undir lok og því ekki úr vegi að rifja upp atburði ársins. Kaffið.is fór í loftið á seinnihluta þessa árs, nánar tiltekið 19. september síðastliðinn. Ungur aldur mun þó ekki stoppa okkur í því að líta yfir farinn veg á þessum tímamótum.

Við tókum saman 10 vinsælustu fréttir Kaffisins á þessu ári.

10. Hamingjusamar hænur í Eyjafirði 

Eitt stærsta fréttamál ársins var þegar Kastljósið afhjúpaði hræðilegar aðstæður sem hænur lifðu við hjá Brúnegg. Það var þó ekki það sama uppi á teningnum hjá Grænegg hér í Eyjafirði. Kaffið fjallaði um hamingjusamar hænur hjá Grænegg og var það 10. vinsælasta frétt ársins.

Hamingjusamar hænur í Eyjafirði

9. Tveir Akureyringar á lista yfir 200 bestu knattspyrnumenn í heimi

Íslendingar fóru mikinn á Evrópumótinu í Frakklandi í sumar og vöktu heimsathygli. Nú í lok árs birti The Guardian lista yfir 200 bestu knattspyrnumenn ársins og þar voru 4 Íslendingar. Tveir af þessum mönnum eru Akureyringar, frábær árangur.

Tveir Akureyringar meðal 200 bestu knattspyrnumanna heims

8.Foodco selur Greifann

Greifinn hafði verið í eigu stórfyrirtækisins FoodCo frá árinu 2006. Það vakti mikla athygli þegar Arinbjörn og Hugrún ásamt Natten Ehf. tilkynntu að þau væru að kaupa þennan vinsæla veitingastað.

Foodco selur Greifann

7. Íslensk stúlka leitar föður síns – Darri fundinn.

Thelma Karen Hilmarsdóttir birti Facebook færslu í desember um að faðir hennar sem væri á leið til Íslands væri týndur. Hann fannst að lokum og Thelma þakkaði fyrir hjálpina sem Íslendingar veittu við leitina.

Darri fundinn – Thelma vill þakka fyrir hjálpina við leitina

6.Ká-Aká og Úlfur Úlfur gefa út lagið Draugar

Halldór Kristinn Harðarsson, Ká-Aká eða Halli rappari, hvað sem hann er kallaður er það víst að hann er á hraðri leið upp stjörnuhimininn. Hans stærsta lag hingað til, Draugar, var frumsýnt á Kaffinu í byrjun nóvember.

KÁ-AKÁ og Úlfur Úlfur gefa út nýtt lag – Myndband

5.Hvanndalsbræður heiðra minningu Ingimars Eydal

Hvanndalsbræður ákváðu að heiðra Ingimar Eydal á afmælisdegi hans 20. október. Þeir frumsýndu útgáfu af María Isabel, lagi með hljómsveit Ingimars Eydal, á Kaffinu og létu fylgja með stórskemmtilegt myndband.

Hvanndalsbræður heiðra minningu Ingimars Eydal – Myndband

4. Lögreglan óskar eftir vitnum að því þegar ekið var á dreng

Ekki gleðilegasta frétt ársins. Ekið var utan í dreng við Múlasíðu á Akureyri og lögreglan óskaði eftir vitnum á Facebook síðu sinni.

Lögreglan óskar eftir vitnum að því þegar ekið var á dreng

3. Barnaverndarstofa leitar að fósturforeldrum fyrir börn á flótta 

Barnaverndarstofa auglýsti eftir fósturforeldrum fyrir börn sem komu hingað til landsins eftir flótta frá sínum heimalöndum.

Barnaverndarstofa leitar að fósturforeldrum fyrir börn á flótta

2. Gáfu flóttafólki bíl 

Guðrún Arndís Aradóttir og fjölskylda hennar gáfu nýju nágrönnum sínum, sem höfðu flúið hingað til lands frá Sýrlandi fyrr á árinu, bíl. Það vakti athygli.

Gáfu flóttafólki bíl

1. Stríðsyfirlýsing Sigmundar?

Sigmundur Davíð bauð til veislu á sama tíma og flokkur hans fagnaði aldar afmæli í Þjóðleikhúsinu. Það var vinsælasta frétt ársins á Kaffinu.

Stríðsyfirlýsing Sigmundar Davíðs?

 

UMMÆLI