Úkraínudagur í Grenivíkurskóla

Úkraínudagur í Grenivíkurskóla

Nemendur og starfsfólk Grenivíkurskóla stóðu fyrir sérstökum Úkraínudegi rétt fyrir skólalok í vor. Verkefni nemenda um Úkraínu voru til sýnis, flutt var tónlistaratriði, og þá var fjöldi fjáröflunarverkefna í gangi; happdrætti, tombóla, fata- og munamarkaður, veitingasala og fleira. Fjölmargir gestir mættu og styrktu gott málefni og ekki má gleyma þætti þeirra fjölmörgu styrktaraðila sem lögðu til happdrættisvinninga, mat og drykki fyrir veitingasöluna og fleira.

Dagurinn heppnaðist vel og samtals söfnuðust tæplega 400.000 krónur sem renna í neyðarsöfnun Rauða krossins vegna stríðsins í Úkraínu. Vel heppnað verkefni sem kveikti umræður og vakti samkennd. Eiga nemendur og starfsfólk, ásamt aðstandendum og styrktaraðilum hrós skilið fyrir þeirra framlag.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó