Vaðlaheiðargöng sögð örugg í jarðskjálftum

Vaðlaheiðargöng sögð örugg í jarðskjálftum

Vaðlaheiðargöng eru nokkuð örugg í jarðskjálftum. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu Vaðlaheiðarganga en þar segir að göng séu almennt talin örugg hvað varðar jarðskjálfta.

Jarðskjálftahrina hefur gengið yfir Norðurland undanfarna daga og því vildu forsvarsmenn ganganna koma því á framfæri að jarðgöng í bergi og á þokalegu dýpi, eins og Vaðlaðheiðargöng, eru nokkuð örugg í skjálftum.

„Allir bergveggir eru styrktir með bergboltum og 10-20 cm steypuhúð. Þá verður fróðlegt að fylgjast með hvort vatnsmagn aukist eða minnki út úr göngunum, eins og staðan er núna virðist þessir skjálftar ekki haft nein áhrif á vatnsmagn eða hita vatns út úr göngunum,“ segir í tilkynningu.


UMMÆLI

Sambíó