Vel heppnað Kótilettukvöld Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennisMynd: Heiða Sveinsdóttir

Vel heppnað Kótilettukvöld Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis

Fimmtudaginn 23. mars hélt Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis Kótilettukvöld í tilefni Mottumars, til styrktar félaginu. Viðburðurinn var haldinn á Vitanum mathús og heppnaðist mjög vel. Þetta kemur fram á vef Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.

Boðið var upp á kótilettuveislu með kótilettum frá Kjarnafæði Norðlenska, meðlæti frá Innes og hægt var að kaupa sér drykki á barnum. Villi Vandræðaskáld veislustýrði viðbuðinum. Raddir Kalla sungu nokkur vel valin lög og Guðrún Arngríms, Maja Eir og Halli tóku nokkur lög í lok kvöldsins.

Aðgangsmiðinn var happdrættismiði en einnig var hægt að kaupa sér auka miða á 1.000 krónur. Á viðburðinum voru einnig seldir mottumarssokkar og Hörður frá Mynthringar og allskonar seldi vörur úr gamalli mynt til styrktar félaginu.

KEA, Kótilettufélag eðal Akureyringa, mættu á svæðið með fulltrúa og færðu félaginu peningagjöf að andvirði 150.000 krónur.

„Það rann upp fyrir mér þar sem ég sat þarna í salnum hversu ómetanlegt það er fyrir félag eins og Krabbameinsfélag Akureyris og nágrennis að hafa þennan ríka stuðning frá því samfélagi sem hér er. Þarna var saman komið hópur fólks sem átti að minnsta kosti tvennt sameiginlegt; dálæti á kótilettum og ómetanlega velvild í garð Krabbameinsfélagsins. Ekki má heldur gleyma stuðningi þeirra fyrirtækja sem sáu sér fært að leggja til glæsilega happadrættisvinninga en það skiptir félag eins og Krabbameinsfélag Akureyrar miklu máli til að halda úti stuðningi við krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Þessi kvöldstund var ákaflega notaleg fyrir margra þátta sakir – frábær skemmtiatriði, veislustjórn til fyrirmyndar, frábær matur og þjónusta frá Vitanum og svo má ekki gleyma góðum undirbúningi starfsfólks félagsins“ segir Selma Dögg Sigurjónsdóttir, formaður Krabbameinsfélags Akureyris og nágrennis, á vef félagsins.

Á vef félagsins má sjá fleiri myndir frá kvöldinu sem að Heiða Sveinsdóttir tók.

UMMÆLI