Vinnustofusýning í Deiglunni um Páska

Vinnustofusýning í Deiglunni um Páska

Laugardaginn 27 mars opnar Haraldur Ingi Haraldsson einkasýningu í Deiglunni,  Listsýningasal Gilfélagsins í Listagilinu á Akureyri. Sýningin opnar kl. 14.

Myndirnar eru allar frá vinnustofudvöl HIH í Svarta pakkhúsinu í Reykjanesbæ á síðasta ári.  Myndirnar eru hengdar upp á frjálslegan hátt enda ekki verið að setja upp sýningu í eiginlegri merkingu heldur að hengja upp afköst vinnutarnar fyrir listamanninn að meta árangur hennar, samhengi og eða sundurlyndi þess sem ratað hefur frá huga í hendur.

Haraldur Ingi verður að vinna við ýmiskonar dund og frágang á meðan á sýningunni stendur
Sýningin stendur til 4 apríl og er hún opin þegar hún er opin.  Helgidagana verður HIH á staðnum frá um 10 á morgnanna og fram til 22 á kvöldin.  Vinnudaga vikunnar frá kl 16 og fram eftir kvöldi.  Ef hurðin er opin þá er sýningin opin.

Haraldur Ingi er menntaður í myndlist frá Myndlista og Handíðaskóla Íslands og frá AKI Akademie voor Beldende Kunst, Enchede, Holland og Frie Akademie Psykopolis Den Haag, Hollandi.

Hann hefur haldið tugi myndlistasýninga en enga á merkilegri stað en í Rauðahúsinu á Akureyri forðum daga.
Öllum er velkomið að koma á sýninguna eða sitja heima. Engin boðskort verða send út.

UMMÆLI

Sambíó