Vonbrigði að góður árangur Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi endurspeglist ekki í í ráðherraskipan flokksinsÞingmenn Framsóknarflokksins úr Norðausturkjördæmi

Vonbrigði að góður árangur Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi endurspeglist ekki í í ráðherraskipan flokksins

Stjórn og varastjórn Framsóknarfélags Akureyrar og nágrennis hefur lýst yfir vonbrigðum með hlutskipti landsbyggðarinnar í nýrri ríkisstjórn. Í ályktun félagsins segir að skipting á ráðherrum sé varhugaverð og til þess fallin að ýta undir ójafnvægi milli höfuðborgar og landsbyggðar.

Í ályktuninni segir að það séu vonbrigði að góður árangur Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi endurspeglist ekki í ráðherraskiptan flokksins. Ályktunina má lesa í heild sinni hér að neðan:

„Stjórnarsáttmálinn sem kynntur var um nýafstaðna helgi er framsækinn og endurspeglar vel meginstefið í öllum baráttumálum Framsóknar – fjárfesting í fólki.  Sú bjartsýni sem í honum ríkir grundvallast á mannauði þessa lands og þeim náttúrugæðum sem gildi hafa fyrir okkur og heimsbyggðina. Tækifærin liggja um allt land til grænnar atvinnuuppbyggingar, skapandi landnýtingar, aukinnar verðmætasköpunar og sjálfbærrar orkunýtingar. Með kröftugri og réttlátri byggðastefnu eigum við svo sannarlega að geta tryggt hagsmuni núverandi sem komandi kynslóða.

Í þessu samhengi er hlutur landsbyggðarinnar við ríkisstjórnarborðið okkur talsvert umhugsunarefni. Enginn ráðherra kemur úr Norðausturkjördæmi, einungis tveir ráðherrar koma úr landsbyggðakjördæmunum þremur og í raun má segja að allir 12 ráðherrar nýrrar ríkisstjórnar komi frá áhrifasvæði höfuðborgarinnar. Þessi skipting er varhugaverð og til þess fallin að ýta undir það ójafnvægi sem glöggt má þegar greina milli höfuðborgar og landsbyggðar. 

Með samhentu átaki og mikilli vinnu náði Framsókn frábærum árangri hér í Norðausturkjördæmi í síðustu kosningum, þar sem flokkurinn hlaut þrjá kjördæmakjörna þingmenn og oddviti okkar Ingibjörg Isaksen hlaut glæsilega kosningu sem fyrsti þingmaður kjördæmisins. Það eru því mikil vonbrigði að sá góði árangur endurspeglist ekki í ráðherraskipan flokksins.

Þingmenn framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi búa að mikilli og fjölbreyttri reynslu og við treystum þeim og styðjum heilshugar til góðra verka fyrir kjördæmið sem og málefni landsbyggðarinnar í heild sinni. 

Við óskum nýrri ríkisstjórn velgengni í sínum störfum en um leið viljum við ítreka mikilvægi þess að málefnum landsbyggðarinnar sé haldið á lofti innan hennar.

Stjórn og varastjórn Framsóknarfélags Akureyrar og nágrennis.“

UMMÆLI

Sambíó