Wolt hefur heimsendingar á Akureyri

Wolt hefur heimsendingar á Akureyri

Hin vinsæla heimsendingarþjónusta Wolt stækkar enn frekar á Íslandi og opnar á Akureyri í
dag. Eftir farsælt ár í Reykjavík og á Suðvesturlandi nær þjónustan nú til Norðurlands.

Frá og með 20. mars eru bláu sendlarnir tilbúnir að hefja afhendingu vara frá veitingastöðum
og verslunum til fólks á Akureyri. Wolt hefur samið við meira en 30 sendla á Akureyri sem sjá
um heimsendingarnar. Fyrirtækið býður upp á vettvang sem sameinar staðbundnar verslanir og
veitingastaði, sendla og viðskiptavini og gerir þér mögulegt að fá nánast það sem þú vilt sent
heim á um 40 mínútum.

„Við erum mjög spennt að geta boðið heimsendingar á Akureyri. Það hefur alltaf verið ætlun
okkar að bjóða þjónustu Wolt í „höfuðborg Norðurlands“ og við erum mjög spennt að hefja
starfsemi Wolt á yndislegu Akureyri. Með því að bjóða upp á Wolt heimsendingu geta
veitingastaðir og staðbundnar verslanir náð til stærri viðskiptavinahóps. Heimsendingarnar
skapa nýja tekjulind fyrir verslanir og styður þannig við hina staðbundnu verslun. Viðskiptavinir
kunna að meta þægindin við að geta fengið kvöldmatinn afhentan heim með snöggum hætti á
þeim dögum sem þeir hafa ekki tíma til að elda sjálfir, eða ef þeir vilja bara dekra við sig,“ segir
Elisabeth Stenersen, framkvæmdastjóri Wolt Iceland & Norway.

Frá fyrsta degi býður Wolt upp á hraðsendingar frá meira en 20 veitingastöðum og verslunum
á Akureyri. Heimamenn geta valið á milli rétta frá öllum heimshornum í Verksmiðjunni, fengið
mögulega bestu hamborgara Íslands á DJ Grill, pizzur frá Sprettur-Inn, kjöt og sjávarfang frá
Greifanum, kebab frá Kurdo kebab og indverskan mat í heimsklassa frá Indian Curry Hut svo
eitthvað sé nefnt. Staðbundinn veitingarekstur hefur gengið vel og bendir Wolt á að fyrirtækið
hefur náð dekkun veitingastaða á Akureyri sem á sér enga hliðstæðu á Íslandi.

„Nær allir veitingastaðir á Akureyri hafa skráð sig. Við erum enn og aftur undrandi yfir þeim
frábæru móttökum sem við höfum fengið bæði frá viðskiptavinum og veitingastöðum á Íslandi.
Markaðurinn hefur stækkað mun hraðar en við bjuggumst við og með tilkomu Akureyrar geta
nú um 75 prósent landsmanna fengið Wolt heimsendingu á innan við 40 mínútum. Þó að
heimsendingarfyrirtæki eins og okkar hafi áður verið takmarkað við stærri borgir höfum við séð
bæði í Noregi og á Íslandi að það er dulin eftirspurn eftir þessari þjónustu utan
höfuðborgarsvæðisins líka. Við erum tilbúin fyrir enn meira á íslenska markaðnum,“ segir
Stensersen.

Wolt hóf göngu sína í Reykjavík í byrjun maí 2023 og hefur síðan útvíkkað þjónustu sína til
Hafnarfjarðar, Reykjanesbæjar, Selfoss og Hveragerðis. Akureyri er sjötta bæjarfélagið á
Íslandi, og það fyrsta á Norðurlandi, sem fær hraðsendingarþjónustu Wolt.
Á heimsvísu er Wolt til staðar í 27 löndum í Evrópu og Asíu. Síðan 2022 hefur fyrirtækið verið
hluti af DoorDash í Kaliforníu.

Þetta eru staðirnir sem verða í boði frá upphafi:
● Sushi Corner
● Rub23
● Bautinn
● Pizzasmiðjan
● Strikið
● Centrum Kitchen & Bar
● Ísbúðin Akureyri og Boozt barinn (x2)
● Berlín Akureyri
● Sykurverk
● Múlaberg
● Kurdo Kebab
● Verksmiðjan
● Greifinn
● Ísgerðin
● Serrano
● GS búllan
● Indian Curry House
● Backpackers
● Dj Grill

UMMÆLI