RÚV sýknað í Sj­ang­hæ-málinu

RÚV sýknað í Sj­ang­hæ-málinu

Ríkisútvarpið hefur verið sýknað af stefnu eiganda veitingastaðarins Sjanghæ á Akureyri. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði fréttamann RÚV og þáverandi útvarpsstjóra, Magnús Geir Þórðarson vegna um­fjöll­un­ar frétta­stofu RÚV um staðinn á Ak­ur­eyri árið 2017.. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Eiganda Sjanghæ er gert að greiða alls 1,5 milljónir í málskostnað til fréttamannsins, Magnúsar Geirs og RÚV.

Sjá einnig:Eigandi Sjanghæ vill formlega afsökunarbeiðni og þrjár milljónir í miskabætur

Eigandinn krafði fréttamanninn og Magnús Geir um samtals sex milljónir í miskabætur vegna fréttar um að grunur léki á vinnumansali á veitingastaðnum og að vinnustaðaeftirlit Einingar-Iðju hefði farið á staðinn til að ræða við starfsfólk.

Sæv­ar Þór Jóns­son, lögmaður Rositu YuF­an Zhang, eig­anda Sj­ang­hæ-veit­ingastaðanna, segir í samtali við Mbl.is að niðurstaðan sé vonbrigði en hann telji fullt til­efni til að áfrýja mál­inu og láta á það reyna fyr­ir æðra dóms­stigi.

Sjá einnig: Eigandi Sjanghæ í skýjunum með Akureyringa

Hann seg­ir að hafðar hafi verið uppi al­var­leg­ar ásak­an­ir í frétt­inni, sem eng­inn grund­völl­ur hafi verið fyr­ir og að málið hafi valdið um­bjóðanda sín­um gríðarlegu tjóni.


UMMÆLI